Gjaldborgin

Okkur ber ekki lagaleg skylda til að greiða þessar 700.000.000.000Ikr og á 5,5% föstum ársvöxtum.

Samt skulum við reyna að semja við breta og hollendinga. Ef þetta er ekki mesta skítafýlu pólitískamál Íslandssögunnar þá veit ég ekki hvað. Það skín í gegn að þau Gjaldborgarsystkinin reyna allt til að koma okkur í ESB viðræður.

ps hvað er að frétta af björgólfsfeðgum?


mbl.is Myndu stefna á lægri vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluverkfall eftir nokkra daga!

Stjórnvöld tala um mikinn kostnað almennings varðandi þetta greiðsluverkfall. Þau reyndar minnast ekkert á hvað það mun kosta almenning að viðhafa sama ofbeldið í nokkra mánuði í viðbót!


mbl.is Fjárfestir fyrir 1.400 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluverkfallið hefst 1.okt.

Sorgleg niðurstaða að stjórnvöld virðast eingöngu skilja ofbeldi. En það er kannski ekkert skrítið þar sem þau beita almenningi ofbeldi með aðgerðaleysi sínu.
mbl.is Vanskil aukast hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hann ennþá forseti?

Hélt satt best að segja að hann væri fluttur af landi brott.  Það er orðið ansi klént þegar einu fréttirnar af honum eru eitthvað í þessa veru.

Dettur af hestbaki... klúðrar viðtölum við erlenda blaðamenn... klúðrar afhendingu á fálkaorðunni og rífst við Dorrit.

Flott sameiningartákn okkar Íslendinga á þessum umbrotstímum!


mbl.is Ólafur Ragnar slasaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreiðar Már...

er einn af stærstu sökudólgunum í þessu bankahruni.

Skýtur doldið skökku við að gaurinn er farinn til Lúxemborg að opna þar fjármálaráðgjöf...  Hvað getur maður sagt!


mbl.is Sást skvetta málningu á húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborgin mætt!

Mikið er nú gott að sjá að Vg eru með réttar áherslurnar fyrir heimilin í landinu.

Til hamingju þeir sem kusu þetta yfir okkur! :)


mbl.is Sykurskattur fyrir lýðheilsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja!

Það mátti ekki seinna vænna enda stutt í sumarfríið sem endar rétt fyrir jólafríið.

Guð blessi Ísland.

 


mbl.is Ný ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju...

Í FJANDANUM fær þessi ríkisstjórn endalausan tíma frá "forsetanum" ?

Ef það hefur einhvern tímann verið nauðsynlegt að vinna þessi mál hratt þá er það núna, hugsið ykkur hrokann í þessu liði.


mbl.is Ríkisstjórn í burðarliðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofbeldið heldur áfram!

Í mínum huga er þetta bara tímaspursmál hvenær almenningur snappar á þessu ofbeldi stjórnvalda.  Lítið sem ekkert er gert til að hjálpa almenningi en skjaldborgin er vissulega til staðar fyrir bankanna og aðrar lánastofnanir!


mbl.is Stýrivextir lækka í 13%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einokun bankanna, kúgun almennings.

"Þá segir Ingólfur að hann sjái ekki að þó menn settu slíkan fyrirvara inn á skilmálabreytingu lána, þar sem slíkur fyrirvari hafi ekki verið í upphaflegum skilmálum, geti breytt réttarstöðu þeirra."

Fyrst svo er, hvað er þá til fyrirstöðu að leyfa þessa fyrirvara fyrst fólk er að biðja um þá?

Annars eru bankarnir orðnir svo vanir að vinna í einokunarumhverfi og kúga viðskiptavini sína að vissulega verða menn með mótþróa þegar viðskiptavinirnir fara fram á eitthvað sem þeir vilja og gætu hagnast þeim.


mbl.is Hafna fyrirvara við lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband